free web stats

mánudagur, júlí 24

Ég fer.

Þú hefur tvær vikur til að gefa mér gjafir, tilbiðja mig einsog guð og kveðja mig.
|

sunnudagur, júlí 23

Ég komst inn í Den Skandinaviske Designhöjskole í Randers í Danmörku. Hann byrjar 6. ágúst, sem er eftir tvær vikur.

Ég veit ekkert hvað ég á að gera núna.
|

fimmtudagur, júlí 20

Að sitja í sólinni á Austurvelli síðustu tvo daga hefur verið draumur. Með bjór, sígó og skemmtilegt fólk í kringum sig. Það jafnast fátt á við þetta.
|

þriðjudagur, júlí 18

.


Þarf að segja meira?
|

sunnudagur, júlí 16

Hvað er nýtt undir ólinni?

Góð vika. Funheit.
Fékk herbergi hjá Gunnari Liljendal á Grandavegi bakvið JL húsið. Fínt herbergi, fínn meðleigjandi.
Á miðvikudag fórum við Aníta, Nína og Arnar Ari á Cultura (mæli með honum) og höfðum alveg æðislegt kvöld saman. Á fimmtudag fór svipaður hópur á Barinn og hafði alveg frábært kvöld. Á föstudaginn (í gær) byrjuðum við Nína og Arnar Ari heima hjá Nínu á Njálsgötunni og Svenni og frú bættust við teitið stuttu seinnna. Þau fóru eftir einhvern tíma og Tobba bættist við samkomuna og gerði allt vitlaust. Steffý kom svo og toppaði allt og allir nema Nína (sem hóf að æla) héldu niður í miðbæ Reykjavíkur og djammið fór á flug. Restin af kvöldinu verður að liggja milli hluta en ég skilaði mér heim í nótt, einn.

(Ef þú last þessa færslu verðuru að kvitta.)
|

mánudagur, júlí 10

Síðustu vikur

Svo gaman á Hróa, svo gaman.
Takk Hildur, Rakel, Victor, Auður og Sara fyrir ógleymanlega ferð.

---

Þó öll plön hér í Reykjavík séu ekki að ganga upp þá eru sum á réttri leið og ég skemmti mér konunglega. Hí á þig ef þú ert á Akureyri.
|