Ég var svo duglegur um helgina. Ummöbleraði hergergið mitt og endurskipulagði. Þetta kom til því ég horfði á Desing Rules á Skjá1 sem er klárlega besti þátturinn, gaurinn er svo flottur!
Og ég fór líka að byrja að hanna, ekki það sem þú heldur samt. Perri.
Talandi um (skrifandi um) þá er hönunnarnáskeið hjá mér á morgun fyrir byrjendur. Býst nú við að það verði allt fullt af kvenfólki eins og síðast, stelpurnar eru að koma sterkar inn. Svo hvatti SvP mig til að halda Fótósjoppnámskeið líka. Vá. En ómerkileg færsla. Hvert fór fyllerísbloggið?
Hingað:
Fimmt:
Oddvitinn, drakk mikið.
Föst:
80's-veisla hjá HildRakel. Geðveikt. Er ekki enn búinn að jafna mig eftir þröngu hvítu buxurnar hans Andra. Fyllerí og allt tilheyrandi.
Lau:
Hauga, hauga, haugafyllerí. Partý - Ytrivík - bærinn. Vá. Mér tókst meiriaðsegja að sofna á Amor klukkan 4.
Mig langaði svo mikið í fyllerí þegar var verið að tala um verslunarmannahelgina í dag. Úff. Og þá fór ég líka að hugsa um Félaxfræðiárshátíðina, get ekki beðið.
Og svo er ég kominn með laið á jólunum. Jújú. Ég fékk uppí háls þegar mamma spilaði einhvern Celine Dion jóladisk í byrjun mánaðarins (!). Ég ætla að vera drukkinn öll jólin í útlöndum. Já: ég er að fara með pabba og afa eitthvert út um jólin. Það verður erfitt. Kem líklega heim um áramótin, Káro aftur?
AlfHOMMA fór aftur á b2.is og við fengum geðveikt margar heimsóknir. Sorpsíða samsemáður (AlfHOMMA þ.e.a.s).