free web stats

miðvikudagur, ágúst 31

Ertu að grínast hvað ég var fullur í gær.. í gær.. þriðjudagskvöld.. dag fyrir útskriftarferð. Við Arnar drukkum á mann.. ehh.. 6 stóra bjóra og 3 skot, allt keypt á bar. Mér líður eiginlega verr í veskinu en í höfðinu, gleðin kostaði rétt tæpan 5þús. kall. Og ég, af einhverjum ástæðum, beatboxaði GEÐVEIKT lengi í gær, á meðan Arnar og geur í öðrum bekk voru að rappa, og ég er ekki að tala um neitt korter... þetta var svona klukkutími, í alvöru. Og Stebbi Jökuls setti, á einhverjum tímapunkti gærkvöldsins, hliðartöskuna sína um hálsinn á mér og ég var e-ð rorrandi fullur með hana um hálsinn, níðþungt helvíti, og hann bara hvarf, og hún liggur hérna á gólfinu hjá mér, einsog e-ð ógeðslegt one-night stand.
|